Um mig

Verið velkomin á heimasíðuna mína, hér eru ýmsar upplýsingar um mig og vöruna.



Hönnuðurinn:

Ég heiti Árnína H.Guðjónsdóttir, er fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði.   


Steinahestur - hráefni:
Efnið sem ég nota við gerð hestanna er sjávarslípað fjörugrjót, aðallega blágrýti (basalt).  Það er algjörlega á valdi náttúrunnar hvernig hestarnir koma til með að líta út og eru engir tveir hestar eins.  Í fjörunni er auðvelt að velja steina af mismunandi stærð og lögun, auk þess sem liturinn getur verið nokkuð breytilegur.  Blágrýtið er yfirleitt steingrátt að lit, en stundum leitar liturinn yfir í grábrúnt eða grágrænt og stafar það af ummyndun bergsins vegna fornra jarðhitaáhrifa.
Með steinunum nota ég hrosshár.

Sérpantanir:
Töluvert er beðið um sérpantanir og vekja þær mikla lukku og eftirtekt.  Sérstaðan er mikil í hinum hefðbundna steinahesti en verður mun meiri og persónulegri með sérpöntun.
Nokkur dæmi um sérpöntun: 
#  Verðlaunagripir               
#  Stóðhestafélög               Steinahestur til hluthafa með hár úr viðkomandi stóðhesti
#  Afmælis/tækifærisgjöf    Steinahestur með hár úr uppáhaldshesti viðkomandi   

Hvar fæst hann?
# Á vinnustofunni, Hlíðartúni 25
# Handraðanum, Hornafirði
# Hægt er að hringja í síma 865-0882 eða skrifa mér á
ninagud1@simnet.is 



Svo þætti mér vænt um ef þú kvittaðir í gestabókina, takk fyrir að kíkja hér inn........
emoticon